Búið er að loka Hellisheiði vegna veðurs og er vegfarendum er beint á að fara um Þrengslin. Þar er hins vegar hálka og snjókoma. Mjög slæm færð er um allt land, að sögn Vegagerðarinnar, snjóþekja er á Sandskeiði og óveður á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er víðast hvar þæfingur, hálka og hálkublettir ófært er um Klettsháls, Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Snjóþekja og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði. Þorskafjarðarheiði er ófær.
Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir, éljagangur og skafrenningur á flestum leiðum. Hálka og stórhríð er á Öxnadalsheiði. Óveður er í Vatnsskarði og á Hólasandi.
Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja og éljagangur. Óveður er á Möðrudalsöræfum, þungfært og stórhríð á Vopnafjarðarheiði.
Á Austurlandi er hálka og hálkublettir, ófært um Fjarðarheiði, Öxi og Breiðdalsheiði, þungfært og óveður í Oddskarði. Óveður er í Hvalsnesi og við Lón.
Á Suðausturlandi er víðast hvar greiðfært en þó eru hálkublettir á stöku stað.