Ófærir fjallvegir austanlands

Björgunarsveitarmenn hafa í dag aðstoðar fólk, sem fest hefur bíla sína á fjallvegum á Austurlandi eða lent í öðrum erfiðleikum vegna óveðurs og ófærðar. Fjarðaheiði er ófær og hefur fólk, sem reyndi að komast þar yfir í morgun, verið sótt, að sögn lögreglu.

Þá hafa björgunarsveitarmenn aðstoðað fólk í Oddskarði. Þar fór bíll út af veginum laust fyrir hádegi. Tveir menn voru í bílnum en þeir meiddust ekki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert