Ekið á konu

Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt varð umferðarslys á Hafnargötu í Reykjanesbæ.  Þar var ekið á unga konu sem var að fara yfir götuna.  Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum kenndi konuna til í vinstra læri, hægra hné og var með skurð á hendi. 

Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.  Hún reyndist ekki alvarlega slösuð og fékk að fara til síns heima að skoðun lokinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert