Þrír gista fangageymslur hjá lögreglunni á Selfossi eftir nóttina vegna óláta og líkamsárásar. Lögregla segir að einn hafi verið handtekinn í kjölfar slagsmála sem brutust út fyrir utan Draugabarinn á Stokkseyri.
Að sögn lögreglu var einn handtekinn vegna líkamsárásar á Selfossi. Lögreglan segir að ekki hafi verið um alvarlega árás að ræða.
Þá hefði verið gefin út handtökutilskipun á þann þriðja.
Tveir voru teknir fyrir að hafa ekið undir áhrifum vímuefna í nótt.