Karlmaður sem var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um að hafa ekið á lítinn dreng í Reykjanes bæ og flúið af vettvangi, var yfirheyrður í gærkvöldi og í nótt. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum verður haldið áfram að yfirheyra manninn í dag.
Málið er ennþá í rannsókn og þá liggur engin játning fyrir. Þá hefur lögreglan unnið að því að rannsaka bifreið þess sem er í haldi.