Starfshópur gerir hættumat fyrir Ísland

Utanríkisráðherra hefur skipað þverfaglegan starfshóp til að gera vandað og faglegt hættumat fyrir Ísland. Gert er ráð fyrir reglulegum upplýsingafundum með utanríkismálanefnd Alþingis en engir þingmenn sitja í hópnum. Formaður verður Valur Ingimundarson prófessor.

Starfinu er ætlað að byggja á bestu þekkingu og hópurinn mun víða leita fanga í fræðum og með nánu samstarfi stofnanir í samstarfsríkjum Íslands á sviði öryggismála.

Auk Vals sitja í hópnum Birna Þórarinsdóttir, stjórnmálafræðingur, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, forstjóri, Einar Benediktsson, sendiherra, Jón Ólafsson, prófessor, Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, Margrét S. Björnsdóttir, forstöðumaður, Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri, Silja Bára Ómarsdóttir, forstöðumaður, Sturla Sigurjónsson, sendiherra, Þór Whitehead, prófessor, Þórir Ibsen, skrifstofustjóri og Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri. Ráðgjafi nefndarinnar verður Alyson Bailes, fyrrverandi forstöðumaður friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi (SIPRI). Starfsmaður nefndarinnar verður Erlingur Erlingsson, sendiráðsritari. Verklok eru áætluð fyrir næsta haust.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert