Tvær nauðganir tilkynntar um helgina

Tvær nauðganir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn lögreglu hefur önnur nauðgunin verið kærð og er málið í rannsókn. Ekki hefur borist formlega kæra í hinu málinu.

Lögregla segir bæði málin hafa komið upp aðfaranótt sunnudags. Önnur nauðgunin átti sér stað í heimahúsi en hin á salerni á skemmtistað.

Ekki liggur fyrir hvort einhver hafi verið handtekinn vegna málsins sem kært var til lögreglu, en einn karlmaður liggur undir grun í því máli að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert