Atburðarás framleidd í annarlegum tilgangi

Fráfarandi trúnaðarmenn hjá Strætó bs. hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrt er, að atburðarás sem þar sem fjórum trúnaðarmönnum hjá fyrirtækinu var tilkynnt að til stæði að veita þeim áminningu, sé  framleidd í annarlegum tilgangi til þess að koma óorði á viðkomandi trúnaðarmenn.

Segir í yfirlýsingunni, að trúnaðarmennirnir hafi unnið ákaflega vel saman og verið líklegir til að  sameina vagnstjóra í þeim markmiðum að sækja rétt sinn vegna stórfelldra samningsbrota fyrirtækisins.

Netsíða trúnaðarmannanna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert