Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, Frjálslyndra og óháðra, verður kosinn forseti borgarstjórnar á fundi hennar í dag. Hann mun jafnframt taka sæti í borgarráði.
Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi F-lista, sem leyst hefur Ólaf af í veikindum hans mun áfram gegna formennsku í menningar- og ferðamálaráði auk þess sem hún á sæti í umhverfisráði.