Stefán Jón fer til Malaví

Stefán Jón Hafstein.
Stefán Jón Hafstein.

Stefán Jón Hafstein verður næsti umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví. Hann tekur við starfinu fyrri hluta næsta árs af Skafta Jónssyni sem snýr heim eftir ársdvöl.

Stefán Jón hefur á þessu ári verið verkefnastjóri ÞSSÍ í Namibíu. Af sex samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar eru umsvifin mest í Malaví en fjórðungur af fjármagni ÞSSÍ á síðasta fór til verkefna í þessa fátæka Afríkuríki. Malaví var í fjórtánda neðsta sæti í vísitölunni um þróun lífskjara í heiminum sem kynnt var á dögunum.

Staða verkefnisstjóra í Namibíu verður auglýst á næstunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert