Klukkan hálf sjö í kvöld lenti bíll á staur á Selfossi, ökumaður var einn í bílnum en sakaði ekki. Bíllinn var óökufær eftir áreksturinn. Mikil hálka er á Selfossi og í uppsveitum Árnessýslu og varar lögreglan vegfarendur við henni.
Vinnuslys varð á Nesjavöllum sinni hluta dags. Maður sem var að vinna við borholu slasaðist á höfði. Ekki er vitað nánar um líðan hans en lögregla og sjúkrabifreiða fóru á staðinn upp úr klukkan sjö.
Annað vinnuslys varð í Hveragerði er maður féll tvo metra í nýbygginu og fótbrotnaði fyrr í dag.