Íslenska fyrirtækið Data Íslandia hefur gert samkomulag við Hitachi Data Systems, dótturfélag japanska stórfyrirtækisins Hitachi, um gagnageymsluþjónustu, en Data Íslandia sérhæfir sig í slíkri þjónustu.
Fram kemur á heimasíðu Data Íslandia, að fyrirtækin tvö hafi einnig þróað hugbúnað sem geri kleift að flytja gögn milli staða.
Fram kom fyrr á þessu ári, að Data Íslandia ráðgerir að reisa tíu gagnageymslur hér á landi fyrir ársbyrjun 2010. Í vor voru kynnt áform um að byggja umhverfisvæna gagnageymslu og gagnaþjónustu í Sandgerði á fyrrum varnarsvæði Sandgerðisbæjar.