Nova hefur opnað verslun í Smáralind í Kópavogi. Verslunin er í göngugötunni á neðri hæð verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem áður var upplýsingaborð Smáralindar. Fyrir er Nova með verslun, þjónustuver og skrifstofur að Lágmúla 9 í Reykjavík.
Fram kemur í tilkynningu, að hægt sé að kaupa 3G farsíma frá 9900 krónum og fá netið í símann frítt til 1. mars 2008 ef gerður er þjónustusamningur við Nova.