Ökumaður sem huldi númeraplötu bifreiðar sinnar og ók of hratt hafði samband við lögreglu í gærkvöldi og gerði grein fyrir sér. Að sögn lögreglu verður maðurinn væntanlega kærður í kjölfarið bæði fyrir hraðasksturinn, og fyrir að hylja númeraplötuna. Þá verður málið sent barnaverndaryfirvöldum þar sem ungur piltur var með í bílnum þegar brotið átti sér stað.