Snorri Már deildarstjóri upplýsingadeildar ASÍ

Snorri Már Skúlason.
Snorri Már Skúlason.

Snorri Már Skúlason hefur verið ráðinn deildarstjóri upplýsinga- og kynningardeildar Alþýðusambands Íslands. Segir ASÍ á vef sínum, að ráðning Snorra Más endurspegli skipulagsbreytingu á skrifstofu ASÍ, þar sem þessi tvö svið séu sameinuð og gerð að sérstakri deild.

Samtímis verður sett sérstök ritnefnd með fulltrúum frá öllum deildum undir forystu Snorra Más.

Snorri Már var hefur starfað lengi sem sjónvarpsmaður en síðastliðna 6 mánuði var hann hins vegar við störf á vegum utanríkisráðuneytisins við friðargæslu á Sri Lanka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert