Tveir hinna slösuðu sem lentu í árekstri á Reykjanesbraut fyrr í kvöld liggja þungt haldnir á gjörgæslu. Hinir slösuðu eru báðir karlmenn sem munu báðir fara í aðgerð innan tíðar. Þriðji einstaklingurinn sem er kona er minna slösuð en verður á sjúkrahúsi yfir nótt til eftirlits.
Búið er að opna Reykjanesbraut fyrir umferð og salta slysstaðinn og reiknað er með að salta brautina í grennd við Hafnarfjörð þar sem hálkan er hvað mest.