Samið við lögreglustjóra um árangursstjórnun

Ríkislögreglustjóri og lögreglustjóra eftir undirritunina í dag.
Ríkislögreglustjóri og lögreglustjóra eftir undirritunina í dag.

Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórar einstakra lögregluumdæma skrifuðu í dag undir samninga um árangursstjórnun. Samningar lögregluembættanna 15 eru mismunandi og taka mið af stöðumati hvers embættis sem lögreglustjórar unnu fyrr á árinu.

Í stöðumatinu var gerð ítarleg greining á starfsemi lögregluembættanna. Árangursstjórnunarsamningarnir taka mið af áherslum dóms- og kirkjumálaráðherra er fram koma í löggæsluáætlun 2007-2011 en þar er langtímaáætlun stjórnvalda á sviði löggæslu sett fram.

Á heimasíðu ríkislögreglustjóra segir, að með tilkomu árangursstjórnunarsamninga verði löggæslustörf markvissari, árangur af þeim mælanlegur og ríkislögreglustjóra falin aukin viðfangsefni á sviði stjórnsýslu.

Lögregluembættin munu skila fjögurra ára framtíðaráætlun til ríkislögreglustjóra fyrir árslok 2007. Þá mun ríkislögreglustjóri leiðbeina embættunum og taka afstöðu til markmiða, mælikvarða og forgangsröðunar verkefna sem fram koma í langtímaáætlun hvers lögregluembættis. Árlega munu ríkislögreglustjóri og einstakir lögreglustjórar taka sameiginlega afstöðu til árangurs af starfsemi lögregluembættisins. Auk þess gerir ríkislögreglustjóri ár hvert grein fyrir árangri af starfi lögreglustjóranna á árinu í ársskýrslu embættisins til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, segist telja, að með þessum samningum hafi verið stigið mikilvægt skref til markvissari og öflugri löggæslu í landinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert