Þrír menn í farbanni reyndu að flýja land

Þrír Litháar sem eru í farbanni vegna gruns um að þeir tilheyri þjófagengi, sem lét til sín taka með stórtækum hætti á höfuðborgarsvæðinu, reyndu í gærmorgun að flýja land. Þegar þeim varð ljóst að lögregla hafði komið auga á þá í innritunarsal Leifsstöðvar tóku þeir til fótanna og komust undan. Lögreglan á Suðurnesjum hefur komið upplýsingum um þessa tilraun mannanna til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Alls eru níu manns í farbanni vegna rannsóknarinnar á þjófagenginu, allir frá Litháen.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert