Á annað hundrað jarðskjálftar höfðu mælst við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls, frá því síðdegis á laugardag og til miðnættis í gær. Skjálftavirkni á svæðinu hefur hins vegar staðið yfir síðan snemma á föstudag, með hléum. Flestir jarðskjálftanna hafa verið 1,5-2 stig á Richter en sá stærsti í gær var 2,9 stig.
Mikið hefur borið á skjálftahrinum við Upptyppinga frá því í lok febrúar og einkenni þeirra er hversu upptök skjálftanna standa djúpt, en flestir eru á 15 km dýpi miðað við 8-9 km dýpi ef um jarðskjálfta á flekaskilum er að ræða. Þessi mikla dýpt og önnur atriði benda til þess að skjálftahrinur á svæðinu tengist kvikuhreyfingum í neðri hluta jarðskorpunnar.