Einn var fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál fyrir utan Draugahúsið á Stokkseyri aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu hlaut maðurinn töluverð meiðsli en er ekki talinn alvarlega slasaður. Engin kæra hafði borist lögreglu í gærkvöldi. Óvíst er um upptök slagsmálanna sem áttu sér aðallega stað á meðal íslenskra karlmanna, að sögn lögreglu. Erfitt er að segja nákvæmlega til um fjölda þeirra sem tóku þátt, en talið er að það hafi verið á annan tug manna.