Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri yfirlýsingu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, að niðurskurður í starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sé ekki á dagskrá.
Stjórnin segist hvetja starfshóp þann, sem fara á yfir rekstur og framtíðarskipulag heilsugæslunnar til að skoða alla þætti þjónustunnar, stjórnun og skipulag.
Stjórnin hvetur jafnframt starfshópinn til að leggja sérstaka áherslu á viðhald og uppbyggingu þeirra þátta í starfsemi heilsugæslunnar sem samræmast yfirlýstum markmiðum stjórnvalda, þ.e. aukna heilsuvernd og heimahjúkrun.