Fjallað er um íslenska háskóla og sterka stöðu kvenna innan þeirra í breska blaðinu Guardian í dag. Fram kemur í greininni að níu háskólar séu á Íslandi en að þeir þyki ekki hafa skýra sérstöðu á alþjóðavettvangi. Það einkenni þá hins vegar hversu hátt hlutfall stjórnenda séu konur og því sé sérstaða þeirra hugsanlega vanmetin.
Einnig er talað við Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Margréti Jónsdóttur, forstöðumann alþjóðasviðs Háskólans í Reykjavík, í greininni. Kristín segir þar m.a. mikilvægt að konur í háskólasamfélaginu gefi kost á sér til stjórnunarstarfa. Það sé bæði mikilvægt fyrir þær sjálfar og kvenkyns nemendur þeirra sem eignist við það sterkar fyrirmyndir.
„Það er sérstakt hvað við höfum marga kvenstjórnendur þar sem einungis 20% prófessora við háskólann eru konur," segir hún. „Þær njóta greinilega trausts og eru valdar af samstarfsfólki sínu."
Svafa segir það þó ekki einungis skila faglegum árangri að hafa bæði konur og karla í stjórnunarstöðum háskóla heldur skili það einnig fjárhagslegum ávinningi.
Bent er á það í greininni að sú skoðun hennar sé í samræmi við niðurstöður samanburðar bandaríska fyrirtækisins Catalyst á afkomu 353 bandarískra stórfyrirtækja en samkvæmt þeim skila fyrirtæki sem hafa konur í stjórnum meiri langtímahagnaði en fyrirtæki þar sem einungis karlar sitja í stjórnum.
Greinina í Guardian má lesa á slóðinni: http://education.guardian.co.uk/higher/news/story/0,,2225347,00.html