Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo 24 ára gamla karlmenn í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi hvorn fyrir fíkniefnabrot. Annar maðurinn var einnig fundinn sekur um að hafa ekið fjórhjóli á meðan hann var undir áhrifum fíkniefna. Sá var sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði.
Í málinu voru m.a. gerð upptæk 105 grömm af amfetamíni, sem mennirnir voru með í fórum sínum í hótelherbergi þar sem lögregla gerði húsleit.
Mennirnir hafa báðir hlotið dóma fyrir ýmis brot.