Héraðsdómur hefur dæmt karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot sem hann framdi á síðasta ári gegn 10 ára gamalli stúlku. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 1 milljón króna í bætur.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um refsingu og bætur.
Við mat á refsingu mannsins var sérstaklega horft til þess að hann var tengdur stúlkunni fjölskylduböndum og að brotin fóru fram á heimili föður hennar. Þá var einnig litið til þess að manninum hefði mátt vera ljóst að stúlkan hefði átt við ýmsa erfiðleika að stríða og þess að atvikin hefðu haft mikil og alvarleg áhrif á hana.