Maður sem handtekinn var við innbrot í lok nóvember hefur verið ákærður fyrir alls tíu brot, nytjastuld, þjófnað, húsbrot og hylmingu, að því er lögreglan á Selfossi greinir frá. Jafnfram var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. janúar. Hann hefur játað brot sín.
Maðurinn var handtekinn á innbrotsvettvangi í Ísakoti ofan Búrfellsvirkjunar 29. nóvember. Í framhaldi af handtökunni vaknaði grunur um að maðurinn tengdist fjölda brota og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til klukkan 16 í dag vegna rannsóknar málsins.
Hún leiddi í ljós að hann hafði gerst sekur um fjölda þjófnaðarmála og hefur hann nú verið ákærður fyrir 10 brot, nytjastuld, þjófnað, húsbrot og hylmingu. Ákæran var þingfest í dag og játaði ákærði brot sín. Málið var í framhaldi af því tekið til dóms og er hans að vænta á næstu dögum. Ákærði var jafnframt, að kröfu sýslumannsins á Selfossi, úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 4. janúar 2008 en þó ekki lengur en fram að því að dómur gengur í málinu.