Harma tón þingmanna Suðurkjördæmis

Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ harmar þann tón sem ákveðnir þingmenn Suðurkjördæmis hafa kosið að senda þeim á sama tíma og unnið er að því að bæta atvinnuástandið í bænum, að því er segir í ályktun frá félögunum. „Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ harmar þann tón sem ákveðnir þingmenn Suðurkjördæmis hafa kosið að senda okkur á sama tíma og unnið hefur verið af fullum krafti við að snúa við þeirri stöðu sem við bjuggum við fyrir um ári síðan; Allt að þúsund manns atvinnulausir, tóm herstöð með yfirskriftina draugabær á „legsteininum“ og fáir sem sáu tækifæri til sóknar í gömlu varnarstöðinni.

Í dag er búið að koma hjólum efnahagslífsins af stað af miklum krafti með því að sjá og nýta tækifærin. Ekki fór mikið fyrir ákveðnum þingmönnum kjördæmisins í því ferli öllu. Þar fóru heimamenn fremstir í flokki. Okkar ágæti bæjarstjóri Árni Sigfússon hefur þar átt mikinn og góðan þátt. Þökkum við honum hans störf hér eftir sem hingað til," að því er segir í ályktun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert