Karlmaður var undir kvöld handtekinn í Vestmannaeyjum en lögregla telur að maðurinn hafi verið í húsinu skömmu áður en elds varð vart í Fiskiðjuhúsinu í nótt. Hefjast skýrslutökur af manninum í kvöld.
Lögreglan í Vestmannaeyjum segir, að sterkur grunur leiki á að um íkveikju sé að ræða og hefur tæplega tugur ungra manna verið yfirheyrður vegna málsins. Hafa sumir þeirra verið í haldi frá því snemma í morgun. Skýrslum af þeim er að mestu lokið og verður þeim sleppt að því loknu.
Lögreglan segir að rannsókn hafi beinst að því að upplýsa mannaferðir í húsinu skömmu fyrir brunann og sé ljóst að nokkrir ungir menn voru í húsinu fyrr um nóttina. Húsið hefur verið lokað að undanförnu, en nokkrir hafa haft lyklavöld að því, m.a. til hljómsveitaræfinga.