Samkomulag er enn ekki í höfn á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á Bali, að sögn Huga Ólafssonar hjá skrifstofu stefnumótunar og alþjóðamála utanríkisráðuneytisins. Hugi er í för með Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á ráðstefnunni.
Fulltrúar Evrópusambandsins og fleiri ríkja, þar á meðal Íslands, hafa krafist þess að iðnríkin skuldbindi sig til þess að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 25 til 40 prósent. Á það hafa fulltrúar Bandaríkjanna, Japan og Kanada ekki viljað fallast. Vonast er til að sátt náist um málamiðlun.