Lögreglan á Selfossi telur að annar Pólverji, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í nauðgun í október, hafi rofið farbann og yfirgefið landið. Félagi hans fór úr landi í byrjun desember. Lýst hefur verið eftir báðum mönnunum á Schengensvæðinu.
Í dag var tekin fyrir krafa lögreglustjórans á Selfossi um framlengingu farbanns yfir tveimur Pólverjum, sem grunaðir eru um hafa tekið þátt í nauðguninni. Annar þeirra, Jaroslaw Pruczynski, mætti ekki og við eftirgrennslan lögreglu hefur komið í ljós að hann hefur ekki mætt til vinnu síðan 9. desember s.l. Segir lögregla að sterkur grunur leikur á að hann hafi fetað í fótspor landa síns sem einnig er grunaður í sama máli, Przemyslaws Pawels Krymskis, sem nú er eftirlýstur af lögreglu fyrir að hafa rofið farbann og yfirgefið Ísland.
Þriðji maðurinn var í dag úrskurður til að leggja fram tryggingu fyrir því að hann yrði tiltækur lögreglu fram til 4. febrúar. Beðið er niðurstöðu rannókna á lífsýnum, en búist er við að hún liggi fyrir eftir 6 vikur.
Lögreglan á Selfossi segir, að við rannsókn þessa máls hafi glögglega komið í ljós að farbann sé afar veikt úrræði til að tryggja að útlendingar, sem koma frá löndum innan Schengen svæðisins, haldi sig á Íslandi meðan þeim er bönnuð för frá Íslandi.
Það sé mat lögreglustjóra að grípi þurfi til annarra ráða en nú séu tiltæk og mætti vel hugsa sér að nota nýjustu tækni í því skyni, svo sem að skylda viðkomandi til að bera staðsetningartæki auk þess að taka upp tilkynningarskyldu. Að auki mætti taka upp þann hátt að þeir sem sæti farbanni greiði umtalsverða fjárhæð til tryggingar því að þeir séu tiltækir en sæti gæsluvarðhaldi ella.