Ríkið lokað á Þorláksmessu

Vínbúðirnar verða lokaðar bæði á Þorláksmessu og daginn fyrir gamlársdag að þessu sinni. Dagana ber upp á sunnudag og samkvæmt áfengislögum er óheimilt að hafa áfengisverslanir opnar á sunnudögum.

Í tilkynningu kemur fram að á Þorláksmessu í fyrra voru 32.568 manns afgreiddir í Vínbúðunum og 30. desember voru 38.156 afgreiddir. Í vikunni fyrir jól í fyrra voru afgreiðslur 113.433 og í vikunni fyrir áramót voru þær 94.765. 

 Afgreiðslutíminn á höfuðborgarsvæðinu og í stærri verslunum svo sem á Akureyri, Keflavík og Selfossi er til tíu um kvöldið laugardaginn 22. desember. Fimmtudag og föstudag fyrir jól er afgreiðslutíminn frá ellefu að morgni til átta um kvöldið og sama á við um föstudag og laugardag fyrir áramót. Opið er frá 9 – 13 á aðfangadag og frá 9 – 14 á gamlársdag. Vínbúðirnar í Kringlunni og Smáralind verða þó ekki opnaðar fyrr en 10.00 þessa daga.  

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert