Allt skemmtanahald er bannað frá kl. 18:00 á aðfangadag á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt er allt skemmtanahald bannað á jóladag. Á annan í jólum er skemmtanahald leyft frá kl. 6 til klukkan 3, aðfararnótt 27. desember. Á nýársdag er skemmtanahald leyft til kl. 03:00 aðfaranótt 2. janúar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.