Sjúkrahóteli LSH við Rauðarárstíg verður lokað 20. desember og opnað aftur 2. janúar. Sú breyting verður á sjúkrahótelinu á nýju ári að reykingar verða ekki lengur leyfðar þar. Slíkt er til samræmis við reglur LSH og Fosshótels Lindar sem er í sama húsi og sjúkrahótelið.