Stjórnendur Hf. Eimskipafélags Íslands segja að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um 310 milljóna króna stjórnvaldssekt, sé ranglega beint gegn núverandi Eimskipafélagi. Bæði hafi orðið eigendaskipti og allir stjórnendur Eimskipafélagsins eldra hafi látið af störfum.
Félagið hafnar því aðild að broti á samkeppnislögum með öllu. Samkeppniseftirlitið segir hins vegar, að Hf. Eimskipafélag Íslands hið yngra hafi tekið við ábyrgð á brotum Hf. Eimskipafélagi Íslands hinu eldra og sé ákvörðuninni því beint að því félagi.Aðrar fréttir í sjónvarpi mbl:
Lögregustjóri tjáir sig um óánægju lögreglumanna
Þriðja alvarlega berklatilfellið á árinu
FL Group tapaði 2,8 milljörðum í Finnair
Greinileg ummerki um íkveikju
Hestar í líkamsrækt