Stór hluti yfir 300 pólskra starfsmanna verktakafélagsins Ístaks fer heim til Póllands á morgun með flugvél Iceland Express í jólafrí en von er á þeim hingað að nýju í janúar.
Að sögn Kolbeins Kolbeinssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Ístaks, búa flestir pólskir starfsmenn fyrirtækisins hér á gistiheimilum og verður enginn þeirra á landinu yfir jólin.
Kolbeinn sagði, að flestir Pólverjanna fari á morgun en einhverjir fara með öðrum flugvélum. Hluti af kjörum starfsmannanna er að Ístak sjái þeim fyrir ferðum til og frá landinu.