Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 40 þúsund króna sekt fyrir brot gegn dýraverndarlögum en maðurinn sleppti tveimur köttum, sem voru í hans umsjá, lausum og skildi þá eftir við hesthús á Hólmsheiði í Reykjavík. Þar fundust kettirnir í mars sl.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi með því að sleppa köttunum lok febrúar eða byrjun mars vanrækt að sjá tveimur köttum í sinni eigu fyrir viðunandi vistarverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu.