Tekið verði tillit til landfræðilegrar sérstöðu Íslands

mbl.is/ÞÖK

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, hefur beint þeim tilmælum til umhverfisráðherra Norðurlandanna og fleiri ríkja að ráðherraráð Evrópusambandsins taki tillit til sérstöðu Íslands þegar það fjallar um tillögur um að fella flugsamgöngur undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir á gróðurhúsalofttegundum.

Í bréfi, sem Þórunn hefur sent umhverfisráðherrum ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins, segir að málið varði Íslendinga mjög miklu vegna landfræðilegrar legu landsins.

Þá segir, samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu, að íslensk stjórnvöld styðji aðgerðir Evrópusambandsins til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda almennt en að slíkar aðgerðir þurfi að vera sanngjarnar og taka tillit til sérstakra aðstæðna. Þá fagni þau ákvörðun Evrópuþingsins um að við útfærslu kerfisins verði tillit tekið til flugs til og frá jaðarsvæðum.

Þórunn óskar eftir því í bréfi sínu að ráðherraráðið útfæri þessa ákvörðun betur til að tryggt sé að tillit verði tekið til sérstakra aðstæðna á Íslandi.

Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir, að íslensk stjórnvöld túlki tillögu Evrópuþingsins svo, að Ísland falli þar undir í ljósi þess að Íslendingar þurfi að reiða sig í meira mæli á flugsamgöngur en flestar aðrar þjóðir. Flugsamgöngur séu enda eini gerlegi samgöngumátinn fyrir farþegaflutninga til og frá landinu. Umhverfisráðherra leggi áherslu á, að áhrif þess að fella flugsamgöngur undir viðskiptakerfi með losunarheimildir verði hlutfallslega mun meiri hér á landi en á öðrum svæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

Með því að fella flugsamgöngur undir viðskiptakerfi með losunarheimildir vill Evrópusambandið hvetja farþega sem ferðast innan Evrópu til að nota í auknum mæli aðra vistvænni samgöngukosti, t.d. lestir.

Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins, mun sitja samráðsfund Norrænna umhverfisráðherra fyrir hönd umhverfisráðherra í Brussel á morgun þar sem málið verður tekið til umræðu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert