Vatnavextir í Hvítá

Frá Selfossi.
Frá Selfossi. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á Selfossi varar bændur og þá sem eiga hagsmuna að gæta við vatnavöxtum í Hvítá. Fylgst er gaumgæfilega með vatnavöxtum í ánni í dag. „Þetta er ekki orðið að almannavarnaástandi enn sem komið er," sagði Svanur Kristinsson varðstjóri á Selfossi í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.

Rennsli efst í ánni er komið upp í 575 rúmmetra við Fremsta Ver upp við Bláfell og er reiknað með að vatnavextirnir verið komnir að Selfossi seinni hluta dags.

Svanur vildi koma þeim tilmælum til bænda og annarra sem eiga hagsmuna að gæta á þekktum flóðasvæðum að huga að eigum sínum og búpening. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert