Maður var sleginn með glasi í andlitið í Reykjanesbæ í nótt. Var maðurinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þurfti að sauma hann með 30 sporum til að loka sárum hans.
Lögreglan á Suðurnesjum segir, að nokkur ölvun hafi verið í miðbæ Reykjanesbæjar en skemmtanahald almennt farið vel fram.