Lögreglan á Akureyri hafði í gærkvöld afskipti af ökumanni á Akureyri sem grunaður er að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina þar sem að sýni voru tekin úr honum vegna rannsóknar máls. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum.
Lögreglumenn urðu svo varir við sama ökumann á ferðinni á bíl seinna um nóttina. Þegar þeir gáfu ökumanninum stöðvunarmerki reyndi hann að stinga lögreglu af og ók á mikilli ferð stutta vegalengd en stöðvaði síðan og hljóp úr bifreiðinni. Lögreglumennirnir hlupu ökumanninn uppi og handtóku hann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Seinni part föstudagsins hljóp lögreglan á Akureyri einnig uppi ökumann sem að grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var í annarlegu ástandi og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöðina á Akureyri.