Ekta jólasnjór féll í höfuðborginni um hádegisbil, þykkur og blautur, og hlóðst á trén. Veðurstofan segir að útlit sé fyrir norðan hvassviðri eða storm norðvestantil á landinu í kvöld og nótt með snjókomu en á sunnan- og austanverðu landinu verði suðvestan 8-15 metrar á sekúndu og dálítil él.