Innbrotsþjófar staðnir að verki

Þrír unglingspiltar voru staðnir að innbroti í Snælandsskóla í Kópavogi um kl. sex í morgun. Að sögn lögreglu komu öryggisverðir að piltunum þar sem þeir voru að týna til tölvur og myndvarpa.

Einn piltanna náðist og er í haldi lögreglu en tveggja er leitað. Skýrsla verður tekin af piltinum síðar í dag.

Að sögn lögreglu fór þjófavarnarkerfi skólans í gang þegar þjófarnir höfðu spennt upp glugga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert