Lögreglan leitar þjófa

Brotist var inn í vinnugám verktakafyrirtækis sem vinnur að framkvæmdum við bæinn Hlíðarenda við Krýsuvíkurveg um jólin. Að sögn lögreglunnar á Selfossi uppgötvaðist innbrotið í morgun þegar menn sneru aftur til vinnu eftir jólahald. Tjónið er metið á mörg hundruð þúsund kr.

Innbrotsþjófarnir brutu niður hurð og stálu öllu steini léttara segir lögregla, en í gámunum var mikið af nýlegum verkfærum. 

Talið er að brotist hafi verið inn í vinnugáminn eftir 23. desember og biður lögregla alla þá sem hafi upplýsingar um málið eða hafi orðið varir við mannaferðir á svæðinu að hafa samband í síma 480-1010. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert