Um 75 sundkappar tóku þátt í árlegu stjörnuljósasundi sunddeildar KR sem fram fór í Vesturbæjarlauginni nú síðdegis.
Nærri 30 ára hefð er fyrir sundinu sem fer þannig fram að sundmenn og laugargestir synda um í lauginni með stjörnuljós þegar slökkt hefur verið á öllum ljósum.