Búast má við að mikill fjöldi fólks leiti aðstoðar vegna áfengissýki sinnar í byrjun nýs árs. Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi, fjölgar þeim sem vilja komast í meðferð alltaf í byrjun árs.
Þórarinn segir að yfirleitt komi upp einhver krísa sem reki fólk af stað, en nýtt ár sé líka ný byrjun, nýtt líf og nýjar vonir. Fólk ákveði að staldra við um áramót og reyna þá að snúa við blaðinu.