Sló á laugardag - dæmdur í dag

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann í andlitið og nefbrjóta hann þar sem þeir voru staddir á veitingastaðnum Gamla Bauk á Húsavík sl. laugardag.

Ákæra var gefin út í málinu í gær og dæmt í því í dag. Fram kemur að maðurinn, sem sló, hafi greitt hinum manninum skaðabætur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert