Nokkurs konar bruggverksmiðja fannst í heimahúsi við Laugaveg um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu fóru lögreglumenn á staðinn vegna gruns um að þar væri þýfi og fundu þeir þá 500 til 600 líta af landa og um 50 lítra af spíra í vinnslu. Einnig fannst ætlað þýfi á heimilinu.