Ákveðið hefur verið að virkja Samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð kl. fjögur í nótt vegna slæmrar veðurspár næsta sólarhringinn. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða jafnframt settar í viðbragsstöðu. Búist er við því að mesti hvellurinn verði milli fjögur og sex í nótt.
Fulltrúar Almannavarnadeildar og fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjórans, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Neyðarlínunnar, Lögreglu höfuðborgarsvæðisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar hittust nú síðdegis til að fara yfir málið og var ákvörðunin tekin í kjölfarið.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er búist við stormi eða roki á öllu landinu í nótt og á morgun og mikilli rigningu á sunnanverðu landinu. Í nótt á að hvessa með suðaustan 23-28 m/s, hvassast vestan til fyrir hádegi, en austanlands síðdegis. Slydda og síðar mikil rigning sérstaklega sunnanlands.
Þeim tilmælum er beint til almennings að gæta að niðurföllum og fergja lausa muni.
Ábyrgðamenn fyrir áramótabrennum eru beðnir um að huga að þeim vegna mögulegs foks.