Erfiðar aðstæður á Austurlandi

Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast víða um land …
Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast víða um land í dag. mbl.is/Hilmar Bragi

Mikill veðurofsi er nú á Austurlandi og hafa fjölmörg útköll borist til lögreglu og hjálparsveita vegna foks. Ekki hefur hins vegar myndast mikill vatnselgur þrátt fyrir að rigning fylgi veðrinu enda var jörð auð á Austurlandi er veðrið skall á. Þar hefur hins vegar verið rafmagnslaust á stóru svæði og aðstæður því mjög erfiðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert