Farþegar Flugfélags Íslands á milli Akureyrar og Reykjavíkur náðu því að verða 200.000 á síðasta degi ársins og þar með var slegið met í farþegafjölda á þessari flugleið.
Í fréttatilkynningu frá Flugstoðum segir: „Millilandafarþegar voru tæp 13.000, aðeins færri en árið 2006 sem var algjört metár í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Ástæða þessarar fækkunar er að áætlunarflug IcelandExpress stóð aðeins í þrjá mánuði árið 2007 og haustflug á vegum félagsins var lítið í ár. Nýting flugsæta þessa þrjá mánuði var samt sem áður mun betri en árið 2006.
Flugfélag Íslands tók upp þá nýbreytni í samstarfi við Icelandair að bjóða upp á beint flug til og frá Keflavík þrjá daga í viku í tengslum við áætlunarflug Icelandair til Evrópu og Ameríku og mæltist það mjög vel fyrir.
Fraktflutningar um Akureyrarflugvöll hafa aukist verulega frá sl. ári eða um 100%. Rétt um1000 tonn hafa verið flutt með flugi til og frá Akureyri – þar af 600 tonn til útlanda.
Flugumferð um Akureyrarflugvöll stefnir í að verða 15% meiri en á árinu 2006, eða um 20.000 flughreyfingar alls.”