Skemmdarvargar á ferð á nýársdag

Nokkuð bar á skemmdarverkum á höfuðborgarsvæðinu á nýársdag og bárust lögreglu allmargar tilkynningar þess efnis. Rúður voru brotnar í a.m.k. fjórum grunnskólum í Reykjavík og einum leikskóla í Garðabæ.Einnig var tilkynnt um rúðubrot í Hafnarfirði, Kópavogi, á Álftanesi og Seltjarnarnesi.

Póstkassar voru skemmdir á nokkrum stöðum í umdæminu og á einum stað var logandi púðurkerlingu stungið inn um bréfalúgu.

Ruslatunnur urðu líka fyrir barðinu á spellvirkjum sem og bílar.

Í Kópavogi sprakk flugeldur í aftursæti bíls og hlutust af því nokkrar skemmdir en ekki er ljóst hvort um óhapp eða ásetning var að ræða.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert